Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. október 2015 var lögð fram fyrirspurn Sigurvins Lárusar Jónssonar, mótt. 25. september 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 9 við Lindarsel. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit um 1.5 metra til suðurs og aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Pro-Ark ehf. dags. september 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2015.