Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Björns Brynjólfssonar, mótt. 3. mars 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits vegna lóðarinnar nr. 21 við Heiðargerði. Í breytingunni felst að heimilt verður að byggja tvær hæðir innan byggingarreits B í stað einnar hæðar með svölum, samkvæmt uppdr. Teiknilist ehf., dags. 1. mars 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. apríl til og með 2. maí 2016 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 11. apríl 2016 er erindi nú lagt fram að nýju. Einnig er lagt fram bréf Ágústu Jónsdóttur, dags. 7. apríl 2016, þar sem ekki er gerð athugasemd við tillögu.