Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júní 2022 var lögð fram fyrirspurn Martina Peony Wiedemann dags. 24. maí 2022 ásamt bréfi dags. 25. maí 2022 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.1, Timburhúsareits, vegna lóðarinnar nr. 41 við Grettisgötu sem felst í að heimilt verði að byggja stakstætt hús, nyrst á lóðinni, í stað viðbyggingar ásamt því að heimild fyrir hækkun á núverandi húsi verði felld niður, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta dags. 24. maí 2022. Einnig er lagt fram skuggavarp Grímu arkitekta dags. 24. maí 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.