Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. október 2020 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 2. október 2020 ásamt greinargerð dags. 2. október 2020 um að færa byggingarreit að Urðarbrunni 23-25, lóð nr. 23-31 við Urðarbrunn, neðar í lóð þannig að unnt sé að koma fyrir bílastæðum. Einnig er lagður fram uppdr. ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020.