Á fundi skipulagsfulltrúa 13. nóvember 2015 var lögð fram fyrirspurn
SMG ehf.
, mótt. 4. október 2015, varðandi fjölgun íbúða á lóðunum nr. 23-31, 50-56, 84-92, 102-104, 106-108, 110-112 og 114-116 við Urðarbrunn. Einnig er lagt fram bréf Gísla Gunnarssonar f.h.
SMG ehf.
, dags. 1. nóvember 2015 og greinargerð
Ónyx ehf.
, dags. 29. október 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.