Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 8. febrúar 2016, um að byggja við suðurhlið/bakhlið hússins á lóð nr. 14 við Dyngjuveg ásamt byggingu bílgeymslu við lóðarmörk austurhliðar, samkvæmt uppdr. Kjartans Hafsteins Rafnssonar, dags. 5. febrúar 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Kjartans Hafsteins Rafnssonar, dags. 5. febrúar 2016 og umboð Kristjáns Jósteinssonar, f.h. VIP Travel ehf., dags. 6. febrúar 2016. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 9. mars 2016. Fyrirspurninni var visað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. mars 2016.