Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Sigurðssonar f.h. Kjartans Ingvarssonar, mótt. 17. maí 2016, um að hækka þak hússins á lóð nr. 34 við Hagamel og byggja 2 kvisti til norðurs, skv. uppdráttum Tvíhorfs, ódags. Einnig lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 7. desember 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. júní 2016.