Lögð fram fyrirspurn Olgu Guðrúnar Sigfúsdóttur, mótt. 15. desember 2015, um að rífa núverandi viðbyggingu hússins á lóð nr. 3 við Kárastíg að hluta eða öllu leiti og reisa nýtt íbúðarhús með þremur íbúðum ásamt sameign, samkvæmt tillögu, dags. 15. desember 2015. Einnig er lagt fram bréf Olgu Guðrúnar Sigfúsdóttur, dags. 15. desember 2015 ásamt lýsingu á fyrirhuguðum framkvæmdum, ódags.