Á fundi skipulagsfulltrúa 29. janúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Flugfélags Íslands ehf., mótt. 23. desember 2015, um að byggja við austurenda hússins nr. 10 á lóð nr. 10-20 við Þorragötu vegna nýs farangursbands, byggja nýtt anddyri í suðurenda og gera nýjan landgang úr vörugámum, samkvæmt tillögu
Kurt og Pí ehf.
, dags. 29. október 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.