Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Stefáns Þ. Ingólfssonar, mótt. 11. janúar 2016, um að hækka þak hússins á lóð nr. 39 við Freyjugötu, setja kvisti á allar fjórar hliðar þaksins og svalir á austurhlið, samkvæmt uppdr. Mannvirkjameistarans ehf., dags. 6. janúar 2016. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.