Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Heiðars Reynissonar, mótt. 20. janúar 2016, um að rífa niður sólstofu við suðvesturenda hússins á lóð nr. 4 við Smárarima og byggja 10-15 m2 viðbyggingu við húsið, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. febrúar 2016.