Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Freys Arnarsonar, mótt. 26. janúar 2016, um að hækka þak hússins á lóð nr. 21 við Laugateig, byggja kvisti til suðurs og norðurs og svalir til suðurs. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. mars 2016.