Á fundi skipulagsfulltrúa 8. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Þórs Inga Daníelssonar, mótt. 1. febrúar 2016, varðandi byggingu sambýlis á jörðinni Hólaland á Kjalarnesi með 6-8 íbúðum. Einnig er lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 7. apríl 2016. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.