Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Stefáns B. Veturliðasonar dags. 14. október 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hólalands á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að heimilt verði að rífa þrjú hús á lóðinni sem skráð eru sem refahús og byggja þess í stað íbúðakjarna með sjö íbúðum.