Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. apríl 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvisti á suður og norður hlið og anddyri á vesturgafl einbýlishúss á lóð nr. 89 við Háagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2016 og bréf þar sem óskað er grenndarkynningar á byggingarleyfisumsókn. Stækkun: 10,2 ferm., 4,9 rúmm. Gjald kr. 10.100