Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 var lagt fram bréf Bjarna TH. Bjarnasonar dags. 6. september 2018 þar sem óskað er eftir áliti skipulagsfulltrúa á breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 31 við Mýrargötu þannig að heilmilt verði að reka gististað í flokki II á 2. og 3. hæð hússins. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2018.