Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lögð fram fyrirspurn Ask Arkitekta ehf. dags. 4. apríl 2018 ásamt greinargerð dags. 4. apríl 2018 um að hækka þak hússins á lóð nr. 7 við Úthlíð, setja kvisti og svalir á þakið og útbúa sér íbúð í risi ásamt því að setja svalir yfir inngang íbúða á 1. og 2. hæð, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 2. apríl 2018. Fyrirspurninni var frestað, fyrirspyrjandi hafi samband við embættið, og er nú lögð fram að nýju,ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2018.