Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Luigi Bartolozzi, mótt. 27. maí 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis, Hvammskotshóla, vegna lóðar nr. 3 við Þingasel. Í breytingunni felst að að byggingarreitur er stækkaður til suðurs um 3,5 og byggja sólstofu á jarðhæð út frá suðurhlið hússins allt að 20 fm., samkvæmt uppdrætti Luigi Bartolozzi, dags. 10. júní 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 14. júlí til og með 11. ágúst 2016 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 25. júlí 2016 er erindi lagt fram að nýju.