Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. mars 2018 var lögð fram fyrirspurn Sigríðar Elínar Jónasdóttur dags. 14. mars 2018 ásamt greinargerð ódags. um breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I vegna lóðarinnar nr. 5 við Skriðustekk (Skriðustekkur 1-7) sem felst í stækkun á byggingarreit bílskúrs. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2018.