Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Rafnssonar, mótt. 14. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar, Örfirisey, vegna lóðarinnar nr. 71-73 við Fiskislóð. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til norðurs um 7,5 metra, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf., dags. 9. september 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. janúar 2017.