Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Hallsteins S. Gestssonar dags. 21. janúar 2020 um breytingu á notkun rýmis merkt 02 0202 í húsinu á lóð nr. 38 við Ármúla úr hárgreiðslustofu í þrjár íbúðir, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020.