Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til koma fyrir svölum á mhl. 03 rými 0202 á suðurhlið og inndregnar svalir með svalalokun á húsi á lóð nr. 38 við Ármúla. Erindi var grenndarkynnt frá 17. maí 2021 til og með 15. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. janúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2021 og samþykki meðeigenda dags. 5. janúar 2021. Gjald kr. 11.200