Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. febrúar 2017 var lögð fram umsókn Gríms Bjarnasonar, mótt. 17. nóvember 2016, um rekstur gististaðar í húsunum á lóðunum nr. 100B og 102 við Hverfisgötu. Einnig er lagður fram tölvupóstur Gríms Bjarnasonar, dags. 14. febrúar 2017, bréf Gríms Bjarnasonar, dags. 8. mars 2017, bréf Friðriks Ársælssonar f.h. Gríms ljósmyndara ehf., dags. 15. mars 2017 og samþykki eigenda að Hverfisgötu 100B, dags. 15. mars 2017.