Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2017 var lögð fram fyrirspurn Gríms Bjarnasonar mótt. 9. nóvember 2017 ásamt bréfi Réttar lögmannsstofu f.h. Gríms Bjarnasonar dags. 9. nóvember 2017 um breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.1 vegna lóðanna nr. 100B og 102 við Hverfisgötu sem felst í að heimilt verður að reka gististað í flokki II í fasteignunum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.