Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2016 var lögð fram umsókn Jóns Hrafns Hlöðverssonar f.h. Brimborgar ehf., mótt. 14. apríl 2016, varðandi uppbyggingu á lóð nr. 7 við Hádegismóa, samkvæmt teikningum Mansard teiknistofu ehf., dags. 6. apríl 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Mansard Teiknistofu ehf., dags. 14. apríl 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.