Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. febrúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að hækka og endurinnrétta rishæð, skipta lóð í tvo sérafnotafletti, framlóð tilheyri eign 0101 og baklóð eign 0001 og eru bílstæði aðskilin frá hverju öðru og er bílastæði 0001 flutt í suð-austur horn lóðar auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum skúr í norðvestur horni lóðar nr. 67 við Efstasund. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 4. febrúar 2021 og samþykki eigenda á Efstasundi nr. 65, 68, 69 og Skipasundi nr. 60 fylgja dags. 4. febrúar 2021. Hækkun rís: XX ferm., XX rúmm. Skúr stærð er : 24,4 ferm., 64,8 rúmm. Gjald kr. 12.100