Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipuagsfulltrúa 16. september 2016 var lagt fram bréf Viðars Austmanns Jóhannssonar, dags. 16. september 2016, þar sem óskað er eftir rökstuðningi á neikvæðri afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 12. ágúst 2016, um nýja starfsemi í húsinu nr. 7 á lóð nr. 7-9 við Rafstöðvarveg og stækkun á millilofti 0201 yfir hæðina. Erindinu var vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 19. september 2016.