Lögð fram umsókn Kristjáns Bjarnasonar dags. 21. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis, raðhús við miðsvæði, vegna lóðarinnar nr. 42 við Hálsasel. Í breytingunni felst að stækka lóð um 1.5 m. breiða ræmu meðfram suðurhlið lóðar á kostnað gangstígs sem liggur þar meðfram lóð, samkvæmt uppdr. Arkitektastofunnar Austurvöllur dags 22. febrúar 2018.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016