Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Vektors, hönnun og ráðgjöf ehf. dags. 16. maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturvallareits vega lóðarinnar nr. 68 við Sólvallagötu. Í breytingunni felst að komið er fyrir nýjum byggingareit fyrir gróðurhús á lóð, samkvæmt uppdr. Vektors, hönnun og ráðgjöf ehf. dags. 15. maí 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. september 2022 til og með 3. október 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Aldís Snorradóttir og Njörður Sigurjónsson dags. 6. september 2022.