Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. maí 2016 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 18. maí 2016, þar sem óskað er eftir umsögn varðandi staðsetningu ökutækjaleigu að Fossaleyni 16. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. júní 2016.