Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Jóns Guðmundssonar, mótt. 13. mars 2017, um að innri húslína, við innri byggingarreit, á nr. 80-92 á lóð nr. 78-92 við Haukdælabraut megi fara 60-70 cm. út fyrir byggingarreitinn á 2. hæð þannig að meginform húsanna verði 11,70 metrar í stað 11 metrar, samkvæmt uppdr. Jóns Guðmundssonar, dags. 25. nóvember 2017. Einnig er lagt fram bréf Jóns Guðmundssonar, dags. 6. mars 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. mars 2017.