Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti samhliða endurnýjun á þaki, ásamt veggsvölum á bakhlið á 1. og 2. hæð og rishæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 27 við Ásvallagötu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2016. Stækkun A-rými x ferm. x rúmm. B-rými x ferm. og x rúmm. C-rými. Gjald kr. 10.100
Svar
Leiðrétt bókun af fundi 26. ágúst 2016: Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2016 dregin til baka og rétt bókun er : Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 18, 20, 25 og 29 og Brávallagötu 40.