Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2016 var lögð fram umsókn Gunnars Atla Hafsteinssonar, f.h. Tandur hf., mótt. 20. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 12 við Hestháls. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til norðurs um 7 metra á 21 metra löngum kafla frá norðvesturhorni byggingarreits í átt að lóðarmörkum Hestháls 10, samkvæmt meðf. uppdrætti Gunnars Atla Hafsteinssonar, dags. 18. október 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.