Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. júlí 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja kvist og svalir á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 17A við Þórsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. ágúst 2016.