Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. ágúst 2016 var lögð fram fyrirspurn Davíðs Kr. Pitt, mótt. 4. ágúst 2016, um að rífa niður eldri byggingu við Smiðjustíg 10 og byggja nýbyggingu í hennar stað, samkvæmt uppdráttum Davíðs Kr. Pitt, dags. 20. júlí 2016. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 2. ágúst 2016. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. september 2016.