Lögð fram umsókn Davíðs Pitt, dags. 14. mars 2017, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.151.5 vegna lóða nr. 10 við Smiðjustíg og 16 við Klapparstíg skv. uppdrætti, dags. 20. febrúar 2017. Húsbyggingar og lóðir við Smiðjustíg 10 og Klapparstíg 16 á reitnum eru í eigu sama aðila sem óskar nú eftir að byggingarreitur minnki á lóð Smiðjustigur 10 og stækki á lóð Klapparstígur 16. Hluti af samþykktu byggingarmagni á lóð Smiðjustíg 10 flyst yfir á lóðina að Klapparstíg 16. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að húsbygging á lóð Smiðjustígur 10 verði rifin. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 10. mars 2017 ásamt áliti Minjastofnunar Íslands, dags. 31. ágúst 2016.