Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Davíðs Pitt, dags. 14. mars 2017, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.151.5 vegna lóða nr. 10 við Smiðjustíg og 16 við Klapparstíg skv. uppdrætti, dags. 20. febrúar 2017. Í breytingunni felst að rífa eldri byggingu að Smiðjustíg 10 og byggja nýtt íbúðarhús með vinnustofum og íbúðum, minnka byggingarreit á suðvesturhluta lóðar við Danska sendiráðið en viðbótar byggingarreitur bætist við austast á lóð, stækka byggingarreit á lóð Klapparstíg 16 til suðurs og flytja samþykkt viðbótabyggingarmagn á lóð Smiðjustíg 10 yfir á lóðina að Klapparstíg 16. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 10. mars 2017, ásamt áliti Minjastofnunar Íslands, dags. 31. ágúst 2016. Tillagan var auglýst frá 27. september 2017 til og með 8. nóvember 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigríður Haraldsdóttir, dags. 6. nóvember 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. nóvember 2017 og er nú lagt fram að nýju.