Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. ágúst 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. ágúst 2016 þar sem spurt er hvort samfara viðhaldi og endurnýjun megi stækka óskráða íbúð í kjallara með því að fjarlægja stiga og gera kjallaraíbúð að séreign, stækka bílskúr og breyta í vinnustofu, gera þaksvalir ofan á bílskúr og koma fyrir geymsluskúr og sorpgeymslu á lóð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Skeggjagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16.ágúst 2016.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 25.júlí 2016