Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. ágúst 2016 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja óleyfis skúr og byggja bílskúr ásamt því að byggja við núverandi íbúðarhús og gera nýjan kvist og nýjar svalir á lóð nr. 23 við Hjallaveg. Stærð á nýjum bílskúr: 40,0 ferm., 139,4 rúmm., stækkun íbúðarhúss: 38,7 ferm., 109,2 rúmm. Stækkun samtals: 78,7 ferm., 248,6 rúmm. Gjald kr. 10.100