Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lögð fram fyrirspurn Róberts Jack, mótt. 28. ágúst 2016, varðandi byggingu tvíbýlishúss á lóð nr. 14 við Iðunnarbrunn í stað einbýlishúss. Einnig er lagt fram bréf Róberts Jack, dags. 28. ágúst 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. sptember 2016.