Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. ágúst 2016 þar sem spurt er hvort byggja megi svalir með brunastiga á norðausturhlið fyrstu, annarrar og þriðju hæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 18 við Sólvallagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. september 2016.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 4. ágúst 2016.