Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Evu Huldar Friðriksdóttur dags. 9. febrúar 2021 um að setja svalir á suðausturhlið risíbúðar hússins á lóð nr. 18 við Sólvallagötu, samkvæmt tillögu teiknistofunnar
Stiku ehf.
dags. 9. febrúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2021.