Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. júní 2017 þar sem sótt er um breytingu á áður samþykktu erindi BN051319 sem felst í því að hætt er við bogadregið þakskyggni ofan á þaki og gluggum á vesturhlið er breytt ásamt því að hætt er við stoðveggi á lóð í húsi á lóð nr. 82 við Úlfarsbraut. Gjald kr. 11.000