Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi byggingarfulltrúa 16. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta íbúðarrými í kjallara í starfsmannaaðstöðu sem þjóna mun starfsmönnum hótels sem sýnt er á meðfylgjandi teikningum og er á lóð nr. 28 við Laugaveg, starfsmannaaðstaðan er í húsi á lóð nr. 28D við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. september 2016..
Gjald kr. 10.100