Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2016 þar sem spurt er hvor leyfi fáist til að byggja rishæð í stað þess að endurnýja þak í núverandi mynd, ásamt breytingu á innra skipulagi 1. hæðar í íbúðarhúsi á lóð nr. 65 við Efstastund. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.