Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. mars 2017 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi þak, byggja nýja þakhæð, endursteypa svalir ásamt minni breytingu á innra skipulagi í mhl. 01 ásamt því að hækka bílskúr, mhl. 02, í húsi á lóð nr. 65 við Efstasund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun A-rými x ferm., x rúmm. Gjald kr. 11.000