Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptar svalir á vesturhlið, undir þeim kemur geymslurými með staðsteyptum veggjum en opið í norðaustur og til að breyta glugga í hurð á húsi á lóð nr. 220 við Sogaveg. Samþykki meðeiganda og eiganda Sogavegar 218 fylgja erindi. Stærð geymslu, B-rými: 18,9 ferm., og 37,8 rúmm. Gjald kr. 10.100