Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvö steinsteypt 26 íbúða fjölbýlishús, fjórar hæðir og léttbyggða, inndregna 5. hæð og bílgeymslu fyrir 40 bíla á lóð nr. 1-3 við Árskóga. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. september 2016.
Bréf frá arkitekt, dags. 14.06.2016 og 05.07.2016, fylgir umsókn. Stærðir: hl.01 A-rými: 3.719,3 ferm., 11.685,7 rúmm. B-rými: 241,6 ferm., 688,6 rúmm. C-rými: 246,8 ferm. Mhl.02 A-rými: 3.740,1 ferm., 11.783,1 rúmm. B-rými: 250,8 ferm., 714,8 rúmm. C-rými: 246,8 ferm. Mhl.03 A-rými: 49,6 ferm., 452,4 rúmm. B-rými: 1.398,3 ferm., 4.250,8. C-rými: 188,9 ferm. Gjald kr. 10.100