Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn
Arkís arkitekta ehf.
, mótt. 9. janúar 2017, um að hækka húsin á lóð nr. 1-3 við Árskóga um 1. hæð þannig að húsin verði 6 hæðir ásamt þakhæð og fjölga íbúðum um 6 í hvoru húsi auk 2 íbúða á þakhæð. Samtals verða 34 íbúðir í hvoru húsi eftir breytingu, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 19 og 20. desember 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2017.