Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Þorleifs Eggertssonar dags. 10. febrúar 2021 um breytingu á notkun hússins á lóð nr. 2E-F við Súðarvog úr vöru- og verslunarhúsnæði í verslunar- og þjónustukjarna. Einnig er lagt fram bréf
Reita fasteignafélags hf.
dags. 9. febrúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2021.